- Allar vörur
- Tengisnúrur
- CAT6A HQ tengikapall, S/FTP, LSOH, lífstíðarábyrgð, fjólublár
Tæknilýsingar
| Lengd í metrum | 0.25 eða 0.5 eða 1.0 eða 1.5 eða 2.0 eða 3.0 eða 4.0 eða 5.0 eða 7.5 eða 10 eða 15 eða 20 eða 25.0 eða 30.0 eða 35.0 eða 50.0 |
10GBit/s tengikapall
Lýsing
Tengikapall í flokki 6A
Skermun: S/FTP skermaður
4 snúin pör
Vírþykkt: AWG26 100% kopar
Kápa: LSOH
12 mismunandi lengdir, 9 mismunandi litir
Ný og framsækin hönnun á beygjuvörn
Wirewin® tengikaplar í flokki 6A uppfylla kröfur ISO/IEC 11801 Ed.2. Þeir gera því gagnaflutning á 10GBit/s mögulegan. Flokkur 6A er skilgreindur fyrir 500MHz. Kapallinn sem notaður er í þessa tengikapla er tvískermaður. Hvert par er með eigin filmuskermun og utan um þau er síðan fléttaður skermur. Þessi gerð er oft kölluð PIMF (pör í málmfilmu/ Pairs in Metalfoil) eða S/FTP. Kápa þessara kapla er úr halógenfríu efni og því tregbrennanleg. Gul RJ45-tengi í flokki 6A með gullhúðuðum snertum eru umlukin sérstakri Wirewin® beygjuvörn sem verndar læsiflipann og gerir jafnframt auðvelt að þrýsta honum niður. Lengdarmerking er á neðri hlið beygjuvarnarinnar. Allir Wirewin® KAT6A tengikaplar eru með lífstíðarábyrgð!